Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nýr skólastjóri

01.09.2015
Nýr skólastjóri

Í dag tekur við nýr skólastjóri í Sjálandsskóla. Helgi Grímsson sem verið hefur skólastjóri frá stofnun skólans hverfur nú til annarra starfa hjá Reykjavíkurborg. Nýr skólastjór er Edda Björg Sigurðardóttir sem verið hefur aðstoðarskólastjóri undanfarin ár. Við starfi aðstoðarskólastjóra tekur Sesselja Þóra Gunnarsdóttir.

Við þökkum Helga fyrir vel unnin störf í Sjálandsskóla og óskum honum velfarnaðar í nýju starfi.

Á myndinni frá hægri: Sesselja Þóra Gunnarsdóttir, Helgi Grímsson, Edda Björg Sigurðardóttir, Margrét Björk Svavarsdóttir forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar og Katrín Friðriksdóttir deildarstjóri skóladeildar Garðabæjar.
Til baka
English
Hafðu samband