Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Heimavinnuaðstoð

24.09.2015
HeimavinnuaðstoðHeimanámsaðstoð fyrir grunnskólakrakka að kostnaðarlausu alla fimmtudaga milli klukkan 15-17 á Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi 7.
Heimanámsaðstoðin er samstarfsverkefni Bókasafns Garðabæjar og Rauða krossins í Hafnarfirði og Garðabæ og felst í því að veita grunnskólanemendum aðstoð við lestur og allt heimanám.

Heimanámsaðstoðin er einu sinni í viku á fimmtudögum milli kl. 15-17 á lesstofu bókasafnsins. Nemendur mæta með heimalærdóm sinn og eru sjálfboðaliðar á vegum Rauða krossins til staðar til að leiðbeina nemendum. Á haustönn er tímabilið frá 24. september til 10. desember og á vorönn 14. janúar til 19. maí.

Hjá okkur í Sjálandskóla er boðið upp á heimavinnuaðstoð tvisvar í viku á unglingastigi.
Á mánudögum og fimmtudögum kl. 14:05-14:55 og eru tveir kennarar í einu sem annast aðstoðina.

Til baka
English
Hafðu samband