Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Göngum í skólann

05.09.2023
Göngum í skólann

Sjálandsskóli tekur þátt í verkefninu "Göngum í skólann" sem hefst á morgun, miðvikudag 6.september. Skóladagurinn hefst þá á sameiginlegri göngu um nágrenni skólans.

Átaksverkefnið er árlegur viðburður í upphafi skólaárs og er markmið verkefnisins að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Á vefnum gongumiskolann.is má sjá nánari upplýsingar um verkefnið.

Myndir frá göngunni í Sjálandsskóla

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband