Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Útikennsla í 2.bekk

29.09.2023
Útikennsla í 2.bekk

Nemendur í 2.bekk hafa brallað ýmislegt í útikennslu núna í haust. Á myndasíðu bekkjarins má sjá nokkrar myndir frá útikennslunni. 

Nemendur hafa farið í skemmtilega leiki þar sem þeir æfðu sig í að skrifa orð sem tengdust þemanu um skordýr.

Þau krítuðu einnig skordýr á stéttina og leituðu að skordýrum í skóginum og skoðuðu þau með stækkunargleri.

Hápunkturinn var að fá að vaða berfætt í læknum við æfingatækin og veiða smádýr og síli.

Myndasíða 2.bekkjar 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband