Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

9. bekkur í Listasafn Reykjavíkur

01.03.2024
9. bekkur í Listasafn Reykjavíkur

Nemendur 9. bekkjar fóru í vettvangferð á öskudag í Listasafn Reykjavíkur. Þar fengu þeir leiðsögn á sýninguna Erró, ,,Valdatafl - skrásetjari samtímans". Á þeirri sýningu dregur Erró valdhafa, harðstjóra og stríðsherra inn í myndheim sinn  þar sem þeir  mæta skrumskælingu, háði og skopstælingu. Sýningin er samsett úr úrvali  málverka, klippimynda, teikninga og þrykks. Þegar þeirri leiðsögn var lokið, fengu nemendur kynningu á sýningunni ,,D-vítamín". Á sýningunni koma saman úrval upprennandi listamanna með glæný og nýleg verk í anda þeirra hefðar sem mótast  hefur í áralangri sýningarröð Listasafns Reykjavíkur. Mjög skemmtileg ferð og nemendur voru til fyrirmyndar. Á heimasíðu skólans má sjá myndir úr ferðinni. 

Til baka
English
Hafðu samband