05.09.2013
Fréttir og myndir frá Reykjum

7. bekkur dvelur nú í Skólabúðunum í Reykjaskóla ásamt Öldutúnsskóla í Hafnarfirði og hefur ferðin gengið alveg frábærlega vel. Fyrsta daginn var veðrið heldur leiðinlegt en nú skín sólin og allir hér eru í sólskinsskapi. Hópurinn er einstaklega...
Nánar04.09.2013
Gróðursetningarferð í Guðmundarlund
Í dag fórum við í gróðursetningarferð í Guðmundarlund. Allir nemendur gróðursettu birkiplöntur og síðan var farið í leiki og grillaðar pylsur í góða veðrinu.
Myndir úr ferðinni eru komnar á myndasíðu skólans
Nánar03.09.2013
Bloggað í textílmennt

Silja textílkennari hefur stofnað blogg þar sem nemendur í textílmennt munu blogga um það sem þau gera í textílmennt í vetur.
Slóðin er: textilmenntrokkar.blog.is
Nánar03.09.2013
Gróðursetningarferð á morgun
Á morgun, miðvikudag, fara allir nemendur í Sjálandsskóla í gróðursetningarferð í Guðmundarlund. Nemendur mæta á venjulegum tíma kl.8.15 og farið verður í rútum. Nemendur munu gróðursetja birki og einnig safna saman birkifræjum fyrir Hekluskóga.
Nánar02.09.2013
7.bekkur í skólabúðir á Reykjum
Í dag er 7.bekkur á leið í skólabúðirnar á Reykjum. Þar verða þau fram á föstudag. Á Reykjum eru starfræktar skólabúðir fyrir nemendur í 7.bekk og það er alltaf mikil eftirvænting að komast á Reyki.
Nánar