Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Opnunarhátíð Klakans

09.09.2015
Opnunarhátíð Klakans

Félagsmiðstöðin Klakinn hélt opnunarhátíð 8. september þar sem tæplega 80 unglingar komu saman og fögnuðu upphafi starfsins.
Mikið var um fögnuð og var áberandi að unglingarnir voru glaðir að koma saman eftir sumarfrí. Klakinn bauð upp á pizzur, gos, músik og "bungie run".
Starfsfólk Klakans hlakka til að starfa með þessum flottu unglingum í vetur sem eru í unglingadeild Sjálandsskóla.

Myndir frá opnunarhátíð Klakans 

Til baka
English
Hafðu samband