Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hlýjar hugsanir-til styrktar flóttabörnum

18.11.2015
Hlýjar hugsanir-til styrktar flóttabörnum

Í dag ætlum við í Sjálandsskóla að byrja á skemmtilegu verkefni sem við köllum „Hlýjar hugsanir“.

Verkefnið gengur út á það að nemendur, fjölskyldur þeirra, kennarar, starfsfólk skólans og allir aðrir sem hafa áhuga á að vera með okkur, prjóna húfur sem við ætlum að senda til flóttafólks sem þegar er farið að finna fyrir kulda í Evrópu.
Frá 18. nóvember til 1. desember verður opið í textílstofunni í öllum frímínutum og hádegishléum fyrir nemendur sem hafa áhuga á það koma að prjóna. Það þarf ekki að prjóna heila húfu heldur er hægt að grípa niður í prjón í smá stund, þannig vinna margar hendur létt verk. Nemendur geta fengið prjóna og garn í textílstofunni, en þá prjóna geta þeir ekki tekið með sér heim.Við mælum með að þeir sem geta komið sjálfir með 40 sm hringprjón annað hvort nr. 4,5 eða 6 komi með þá í skólann. Þá er allt garn líka vel þegið. Þá má líka prjóna heima, stórar og litlar húfur, einfaldar eða flóknar.

Laugardaginn 21. nóvember ætlum við að hafa opið hús í hátíðarsal skólans milli kl. 11 og 14, þar sem nemendur geta komið með mömmu og pabba, afa og ömmu, systkinum eða öðrum áhugasömum og prjónað húfur. Þá gildir það sama, það þarf ekki að prjóna heila húfu, nokkrar umferðir skipta líka máli. Þá geta þeir sem ekki kunna að prjóna einnig hjálpað til með ýmsum hætti svo sem með því að búa til dúska á húfurnar, sauma á þær endurskinsmerki og merkja þær. Það mætti líka hella upp á kaffi, blanda djús eða deila út piparkökum.

Verkefnið endar á því að 5. og 6. bekkur sér um að merkja og pakka húfunum á jóladögunum okkar 2. og 3. desember. Við erum komin með tengilið í Vínarborg sem mun hafa milligöngu um að deila út húfunum, með hjálp þarlendra skólabarna, en við eigum enn eftir að finna út hvernig við komum húfunum þangað. Aðstoð varðandi það er vel þegin.

Við erum ótrúlega spennt fyrir þessu verkefni enda kjörið tækifæri til kennslu og umræðna um málefni líðandi stundar og gaman að leyfa nemendum að upplifa að þeirra framlag skiptir máli.
Við hvetum alla foreldra til að taka þátt og gera þetta hlýja verkefni að stórviðburði sem tekið verður eftir.

Facebook síða um verkefnið 

Með von um jákvæð viðbrögð og góða þátttöku,
Silja 
Textílkennari í Sjálandsskóla í Garðabæ
siljak@sjalandsskoli.is

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband