Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lestrarátak Ævars vísindamanns

05.01.2016
Lestrarátak Ævars vísindamanns

Þann 1. janúar hófst í annað sinn lestrarátak Ævars vísindamanns. Átakið er hugsað fyrir 1. til 7. bekk og virkar þannig að fyrir hverjar þrjár bækur sem nemendur lesa fylla þau út lestrarmiða og einhver fullorðinn kvittar fyrir. Átakinu lýkur 1. mars og nöfn fimm barna verða dregin út. Í verðlaun fá þau að verða persónur í nýrri bók sem Ævar er að skrifa.

Á bókasafninu er búið að setja upp kassa fyrir miðana. Þar er hægt að fá lestrarmiða en einnig er hægt að nálgast miða á vefsíðu Ævars vísindamanns 

Nánari upplýsingar um lestrarátakið
Til baka
English
Hafðu samband