Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fræðslubók um Covid-19

28.04.2020
Fræðslubók um Covid-19

Rauði krossinn á Íslandi lét þýða barnabókina ,,Hetjan mín ert þú" á íslensku. Hetjan mín ert þú er barnabók sem er skrifuð um COVID19 faraldurinn og bókin er ókeypis á netinu.

Markmiðið með gerð bókarinnar var að foreldrar eða aðrir sem starfa með eða sinna börnum fái tól til þess að ræða við börn um ástandið sem nú ríkir. Gerð var könnun hjá um 1700 foreldrum og börnum víðsvegar um heiminn til þess að meta andlegar og sálfélagslegar þarfir barna meðan á COVID19 stendur. Ramminn utan um efnistökin var unnin upp úr niðurstöðum könnunarinnar auk þess sem hún var prufukeyrð og endurbætt áður en hún var svo gefin út í endanlegri mynd. Hetjan mín ert þú er bók sem ætti helst að vera lesin af foreldri (eða kennara eða öðrum umönnunaraðila barna) fyrir barn eða lítinn barnahóp. Ekki er mælt með því að börn lesi bókina án stuðnings foreldra.

Hér er hlekkur á allar útgáfur bókarinnar.
Bókin er til á: íslensku, ensku, úkraínsku, bahasa malay, arabísku, spænsku, þýsku, tyrknesku, dönsku, frönsku, kínversku, portúgölsku, rússnesku, búrmísku, sinhala, albanísku, grísku, ítölsku, tamíl, pólsku, búlgörsku, mongólsku, kóresku og lettnesku og væntanleg á fleiri tungumálum.

Til baka
English
Hafðu samband