Sigurvegarar Greindu betur.
Þann 2. apríl síðastliðinn voru veitt verðlaun í Greindu betur sem er tölfræðikeppni á vegum Hagstofu Íslands. Rúmlega hundrað lið skráðu sig til leiks að þessu sinni. Keppnin er þverfaglegt tilraunaverkefni sem ætlað er að veita unglingum á aldrinum 14 til 19 ára tækifæri til þess að efla hæfni sína í því að nýta upplýsingar á ábyrgan, skapandi og gagnrýninn hátt. Keppnin er undankeppni fyrir Evrópsku tölfræðikeppnina og býðst nemendum sem ná fyrsta sætinu að taka þátt í henni.
Ánægjulegt er að segja frá því að í ár hlaut fyrsta sætið í yngri flokknum lið Sjálandsskóla- Refirnir, Hákon Bjarnar Eiríksson og Jón Þór Sanne Engilbertsson, með verkefnið Áhrif efnahagshrunsins á kaup og kjör Íslendinga. Í umsögn dómnefdar segir meðal annars: Flott verkefni um áhugavert málefni. Kynningin sem heldur rauðum þræði í gegnum alla kynninguna með hreinni og hnitmiðaðri uppsetningu. Flott að veita bakgrunn um Hrunið til að setja sögusviðið fyrir tölunum seinna. Skýrt markmið og rannsóknarspurning sem er svarað í kynningunni. Heilt yfir er þetta vönduð og vel unnin kynning sem sýnir bæði skilning og metnað- flott frammistaða!
Sjálandsskóli og Austurbæjarskóli deildu með sér fjórða til fimmta sætinu. Það var Alexander Leó með verkefnið Atvinnuleysi á Íslandi. Annað sætið vermdi lið frá Háaleitisskóla og í þriðja sæti lið frá Kársnesskóla.
Við óskum öllum þessum flottu nemendum til hamingju með árangurinn.