Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

07.05.2013

Slæmur hárdagur í dag

Slæmur hárdagur í dag
Í dag var slæmur hárdagur hjá okkur í Sjálandsskóla. Þá mættu nemendur og starfsfólk illa til höfð, með hárið út í loftið :-) Á myndasíðunni má sjá myndir frá slæma hárdeginum
Nánar
03.05.2013

Grænfánalagið

Grænfánalagið
Í tilefni af grænfánaverkefniu sem skólinn tekur þátt í, þá sömdu og sungu nemendur lag. Allir nemendur skólans komu að laginu. Sumir sömdu textann, sumir laglínuna og aðrir ýmist sungu, hrópuðu, klöppuðu eða spiluðu.
Nánar
03.05.2013

Árshátíð unglingadeildar

Árshátíð unglingadeildar
Í gær héldu nemendur í unglingadeild árshátíð í Sjálandsskóla. Kvöldið hófst með kvöldverði í skólanum þar sem boðið var upp á kalkún og gómsætar kökur í eftirrétt, sem nemendur bökuðu sjálfir. Síðan voru skemmtiatriði, frá nemendum og kennurum og ...
Nánar
03.05.2013

3.-4.bekkur sýndi leikrit á ensku

3.-4.bekkur sýndi leikrit á ensku
Í gær sýndi 3.-4.bekkur leikrit í morgunsöng. Leikritið var á ensku og hafa krakkarnir verið að æfa það í enskutímum. Á myndasíðunni má sjá myndir frá leikritinu.
Nánar
30.04.2013

Valgreinar í unglingadeild

Valgreinar í unglingadeild
Valfög í 8.-10. bekk Sjálandsskóla skólaárið 2013-2014 eru kennd á námskeiðum. Hvert námskeið er tvær stundir á viku í 8-9 vikur. Hver nemandi er í þrem valnámskeiðum í hverri viku. Á skólaárinu tekur nemandinn því þátt í 12 valnámskeiðum.
Nánar
30.04.2013

Kennaranemar í íþróttum

Kennaranemar í íþróttum
Næstu 3 vikurnar verða kennaranemar hjá okkur í Sjálandsskóla, í íþróttum og sundi. Nemarnir eru úr Háskólanum í Reykjavík og eru að læra íþróttafræði. Þetta eru þau Hákon Jónsson og María Kristín Gröndal.
Nánar
30.04.2013

Grænn dagur- grænfáni

Grænn dagur- grænfáni
Á miðvikudaginn var grænn dagur í Sjálandsskóla. Þá mættu nemendur og starfsmenn í grænum fötum. Þann dag fékk skólinn jafnframt afhentan Grænfánann og er skólinn þá formlega orðinn þátttakandi í grænfánaverkefni Landvernda
Nánar
23.04.2013

Vorleikar

Vorleikar
Í dag og morgun eru vorleikar í Sjálandsskóla. Þá er skólastarfið brotið upp og búnar til 22 stöðvar með ólíkum verkefnum. Nemendum í 1.-10.bekk er skipt niður og blandað í hópa og hóparnir fara á milli stöðva, 11 í dag og 11 á morgun. Stöðvarnar...
Nánar
23.04.2013

Grænn dagur á morgun

Grænn dagur á morgun
Á morgun miðvikudag, 24.apríl, er grænn dagur í Sjálandsskóla. Þá koma allir nemendur og starfsmenn í einhverju grænu. Við höldum áfram með vorleikana fyrir hádegi og svo fáum við Grænfánann afhentan eftir hádegi.
Nánar
23.04.2013

Nýtt skóladagatal

Nýtt skóladagatal
Nú er komið út nýtt skóladagatal Sjálandsskóla fyrir næsta vetur, 2013-2014. Skóladagatalið má finna á vef skólans
Nánar
17.04.2013

Útikennsla 5.-6.bekk

Útikennsla 5.-6.bekk
Í gær fengum við erlenda gesti í heimsókn sem tóku þátt í útikennslu hjá 5.-6.bekk. Settar voru upp þrjár stöðvar. Verkefnin sem við unnum voru í fjörunni en þar leituðum við að smádýrum og skoðuðum þau í víðsjám.
Nánar
10.04.2013

Leiksýning hjá unglingadeild

Leiksýning hjá unglingadeild
Í gær fengu nemendur í Sjálandsskóla, Alþjóðaskólanum og leikskólanum Sjálandi, að sjá leiksýningu unglingadeildar, Cirkus de Lux, sem unglingarnir hafa verið að sýna undanfarin kvöld. Sýningin var glæsileg og gaman að sjá hversu hæfileikaríkir...
Nánar
English
Hafðu samband