Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Almannavarnir spá óveðri á morgun

30.11.2015
Almannavarnir spá óveðri á morgun

Veður­stofa Íslands vek­ur at­hygli á mjög slæmri veður­spá fyr­ir morg­undag­inn, þar sem gert er ráð fyr­ir aust­an­stormi víða um land seinnipart­inn.
Mikilvægt er að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni í skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sækiskóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll. Hið sama gildir ef foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.

Á heimasíðu skólans má finna verklagsreglur vegna röskunar áskólastarfi sökum óveðurs 

 

Til baka
English
Hafðu samband