Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

15.04.2011

Gleðilega páska !

Gleðilega páska !
Í dag, föstudaginn 15.mars, er síðasti kennsludagur fyrir páskaleyfi. Kennsla hefst að nýju samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 26.apríl. Starfsfólk Sjálandsskóla óskar nemendum og foreldrum gleðilegra páska.
Nánar
15.04.2011

Ljótupeysudagur starfsfólks

Ljótupeysudagur starfsfólks
Í dag var starfsfólk Sjálandsskóla í misfallegum og skrautlegum peysum. Tilefnið var ljótupeysudagurinn þar sem keppt var um ljótustu peysuna. Á myndasíðunni má sjá sýnishorn af þeim peysum sem starfsfólkið klæddist í dag.
Nánar
13.04.2011

Diskó í kvöld (5.-7.bekkur)

Diskó í kvöld (5.-7.bekkur)
Í kvöld, miðvikudag 13.apríl, er diskó í Sjálandsskóla fyrir 5.- 7. bekk kl.18-20. Pöntuð verður pizza og er sneiðin á 150 kr. Nemendur mega hafa með sér gos og sælgæti.
Nánar
11.04.2011

Árshátíð unglingadeildar

Árshátíð unglingadeildar
Unglingadeild Sjálandsskóla hélt árshátíð sína 7.apríl. Húsið opnaði kl.18 og hófst með fordrykk. Fljótlega byrjuðu skemmtiatriði frá nemendum og snæddur var hátíðarkvöldverður inn á milli atriða. Leynigesturinn Erpur mætti á svæðið og skemmtu...
Nánar
08.04.2011

Tónlist fyrir alla - ,,Raddir þjóðar"

Tónlist fyrir alla - ,,Raddir þjóðar"
Sigurður Flosason saxófónleikari og Pétur Grétarsson tölvuhljómborðsleikari heimsóttu okkur í morgunsöng í dag og fluttu tónverkið ,,Raddir þjóðar". Í þessari dagskrá má segja að tónlistararfur íslensku þjóðarinnar sé tekinn til skoðunar á...
Nánar
08.04.2011

Útieldun í heimilisfræðiviku í 7.bekk

Útieldun í heimilisfræðiviku í 7.bekk
Í 7.bekk stendur yfir heimilisfræðivika, þar sem nemendur elda og baka á hverjum degi alla vikuna. Á þriðjudaginn var útieldun þar sem þau bjuggu m.a. til kókosbollur og laxabuff. Á myndasíðunni má nemendurna í útieldun
Nánar
06.04.2011

,,Sleepover" í unglingadeild

,,Sleepover" í unglingadeild
Í síðustu viku héldu nemendur í 9. og 10. bekk ,,sleepover", þar sem þeir dvöldu í skólanum yfir nótt. Nóttin fór m.a. í að undirbúa árshátíðina sem fram fer annað kvöld. Nemendur skemmtu sér vel, bjuggu til alls konar skraut, borðuðu pizzu, horfðu á...
Nánar
31.03.2011

,,Sjálandsskóli got talent" - leiklistarhópur 5.-6.bekkjar

,,Sjálandsskóli got talent" - leiklistarhópur 5.-6.bekkjar
Í morgun sýndi leiklistarhópur 5.-6.bekkjar leikritið ,,Sjálandsskóli got talent" við mikinn fögnuð nemenda. Leikritið var lokaverkefni leiklistarhópsins og endaði á dansi þar sem nemendur sungu og dönsuðu við lagið ,,Gordjöss"
Nánar
30.03.2011

Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2011 fór fram í sal Tónlistarskóla Garðabæjar fimmtudaginn 24. mars. Fyrir hönd Sjálandsskóla kepptu Dagrún Sara Gunnarsdóttir, Diljá Eir Ólafsdóttir og Hákon Hákonarson
Nánar
28.03.2011

Svarthol eftir 5.-6.bekk

Svarthol eftir 5.-6.bekk
Í tengslum við himingeims þema 5. og 6. bekkjar sömdu stelpurnar í 5. bekk tónverk sem heitir Svarthol sem þær svo æfðu og tóku upp. Verkið segir sögu geimfars sem sogast inn í svarthol
Nánar
25.03.2011

Alheimsráðstefna himingeimsins í 5.-6.bekk

Alheimsráðstefna himingeimsins í 5.-6.bekk
Nemendur í 5.-6. bekk sýndu leikritið Alheimsráðstefna himingeimsins í gær við góðar undirtektir. Leikritið var lokauppgjör þema um himingeiminn sem krakkarnir hafa verið að vinna í síðustu vikurnar. Í því var fjallað um sólkerfið okkar og einnig...
Nánar
25.03.2011

Veðurþema hjá 1.-2. bekk

Veðurþema hjá 1.-2. bekk
Krakkarnir í 1. og 2. bekk eru að vinna þema um veður. Að því tilefni fengu þeir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing í heimsókn til sín. Hann fræddi þá um veðrið og voru krakkarnir mjög áhugasamir og hlutstuð með athygli. Í lok tímans svarði Einar...
Nánar
English
Hafðu samband